Á Facebook er að finna hóp sem kallar sig „Þjóðmálin“. Þegar hinsvegar betur er að gáð. Þá kemur í ljós að umræddur hópur er ekkert nema rasista, nasista og áróður gegn samkynhneigðu fólki, transfólki og útlendingum. Það eru tveir aðildar skráðir fyrir hópnum. Þar er um að ræða tvo gamla menn, einn sem vinnur í Háskóla Íslands og annar sem vann eða vinnur í Grunnskóla Patreksfjarðar.

Þarna fer ekki fram nein umræða um þjóðmálin. Heldur er þetta eingöngu notað til þess að dreifa áróðri, upplýsingaóreiðu gegn minnihlutahópum á Íslandi, Evrópusambandinu. Þarna eru hinsvegar harðir stuðningsmenn Donald Trump, nasistahópa í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Virðast vera mjög á móti lýðræði og frjálsum skoðunum. Það er einnig áhugavert að þessi hópur er uppfullur af gömlu fólki sem verður ekki meðal lifandi eftir 1 til 20 ár, jafnvel styttra. Fólk sem ætti almennt ekki að vera á Facebook, þar sem það er ófært um að grein milli réttra upplýsinga síðan skáldskapar og annar upplýsingaóreiðu sem er að finna á Facebook í dag. Það hefur einnig komið í ljós að Facebook er alveg sama, reyndar hvetur Facebook til þess hafa fólk á þessum aldri þarna inni. Vegna þess að Facebook getur grætt peninga á eldra fólki með svona hræðsluáróðri.
Hérna er dæmi um upplýsingaóreiðu og lygar sem þessi hópur dreifir. Annað dæmið er frá Apríl en hitt er frá því í dag (29. Maí 2026).

Hérna er póstur gegn rithöfundi og bók hennar sem var notuð í grunnskóla í Reykjavík.

Þetta er ein ástæðan afhverju umræðan á Íslandi er eins og hún er. Það er fullt af svona hópum á Facebook sem dreifa svona rangfærslum, lygum og upplýsingaóreiðu til stór hóps fólks á Íslandi. Fólk sem er jafnvel ófært um að greina rangar upplýsingar frá réttum upplýsingum vegna aldurs og skorts á þekkingu.
